Verðtrygginguna burt sem fyrst.

Það eru nokkur ár síðan að Framsóknarflokkurinn var með á stefnuskrá sinni að afnema

verðtrygginguna þetta voru kosningaloforð Frammsóknar þá, ég hitti Sif Friðleifsd. og spurði hana

hvort þeim væri alvara með þessum loforðum hún kallaði í aðstoðar mann sinn og spurði hann

hvort þetta væru loforð þeirra hann játti því það kom ekkert meira út úr þessu samtali þar sem

hún vissi ekkert um þessi loforð, en nú nýverið hitti ég Gylfa Arnbjörns forseta ASÍ og spurði

hann hvort að hann væri ekki sammála mér því að við myndum afnema verðtrygginguna

 NEI það kemur ekki til greina

við verðum að verja lífeyrissjóðina, ég segi nú bara verja þessa sjóði þeir gambla með þá að

egin vild eins og þeir væru einu eigendurnir, okkur kemur ekkert við hvernig þeir ávaxta þá að

þeirra mati, samtal okkar Gylfa fór út í aðra sálma ég stakk uppá að auka þorskvótann en hann

var fljótur að svara mér því nei við borðum ekki útsæðið ég hugsaði strax til Austfirðinga um árið,

en hvað er ekki að koma í ljós að það er nóg af þorski í sjónum, síðustu mælingar sem HAFRÓ

gerði sýndi það en þá vilja þeir bíða  fram í Mars vegna þess að þá eru þeir vanir að taka marktækari

rannsóknir ,ég vona nú að sjávarútvegsráðherra auki hann strax síldin brást. Auka þorskvótann strax

Einar K.Jæja áfram með verðtrygginguna ég vil hana burt sem fyrst við hljótum að geta það, það eru

fleiri heimili að fara yfirum á þessu það verður að að afnema hana strax, eða skipta um gjaldmiðil.

 

 


Lán frá Bretum tæpar 600 milljarðar.

Erum við að fara taka lán frá bretum uppá tæpa 600 milljarða til að borga Icesave sparnaðinn þeirra.

Við almenningur þurfum að borga þetta ,bíðum aðeins við fá þá bretarnir allt sitt út úr

Icesave sparnaðinum ? en við íslendingar sem spöruðum í peningamarkaðsjóðum það rýrnaði minn

sparnaður um ca 30 % allstaðar kemur þetta við okkur almenning það sem örfáir menn fjárglæframenn

ég leyfi mér að kalla þá það, komu okkur í mínus í liferyissjóðum og í sparnaði.En hvða skildu þeir

hafa tapað? ég á ekki við einhverja milljarða sem þeir hafa örugglega komið undan og tapað 

einhverjum hlutabréfum sem sikiftu þá ekki máli það lítur bara betur út að hafa tapað einhverju .

Svo eru þeir að halda uppteknum hætti áfram eru hættir í Bönkunum en eru samt á hliðarlínunni.

Horfði á Silfur Egils þvílíkt og annað eins þetta er rotið kerfi þarf að hugsa þetta aðeins betur.

 


Guðni hættur formensku Framsóknar hvað veldur?

Ekki trúi ég að ungliðahreyfing framsóknar hafi bolað Guðna í burt ? Það hefði þurft meira til

maður heyrði á Guðna að hann væri ekki tilbúinn að ganga í ESB eins og undirituðum og vona ég að það verði ekki strax það þarf að skoða þessi mál miklu betur hvaða vitum við hverju við töpum og hvað við græðum á því að ganga í ESB nóg með .þetta að sinni, það sem þarf að gera núna er að taka verðtrygginguna af þó fyrr hefði verið nú er kominn vextir á verðbótaþátt þú fékst ekki verðbæturnar að láni þær bætast við og svo er tekin vextir á þennan verðbótaþátt sem þu hefur engin afnot af ,Eg hitti Gylfa Arnbjörnson og fórum við að tala saman og kom ég inná verðtrygginguna sem ég hef aldrei þolað

spurði ég Gylfa hvort hann ætlaði ekki að beita sér fyrir því að hún yrði afnumin hann svaraði þvi til

neitandi og ég spurði hvers vegna þá kom í ljós að hann var að vernda lífeyrissjóðina að það yrði algjört hrun á þeim ef verðtryggingin yrði afnumim .Ég sagði nú óskup lítið eftir þetta það er verið að flakka með

lífeyrissjóðina út um allt og allan heim til að ávaxta þá, mér fannst ekki nógur skilningur á þessu ,þessi verðtryging er versti óvinur allra sem þurfa að taka lán kemur okkur láglaunafólki verst það er ekki hægt að verja þessa verðtryggingu þetta er hvergi í heiminum nema hér vextirnir gætu komið í staðinn fyrir hana gamli Alþýðuflokkurinn setti þetta á á sínum tima og hefur ekki farið af síðan Jón Baldvin ætti að vera ánægður það var hann sem kom þessu á eða hanns flokkur man ekki hvaða ár það var en þá var í gildi lánskjaravísitala og launavísitala það vantaði ekki að þeir tækju launavísitöluna úr sambandi ,þá gátu þeir hækkað lánskjaravísitöluna eins og þeir vildu en þá fylgdu ekki launin með þar með var það búið og er eins og það er í dag verðtryggingin er að fara með fólk fólkið hættir að geta borgað skldirnar

sínar.

góðar stundir.

 

 

 


Aukaflokkar

Bloggar Spaugilegt Stjórnmál og Samfélag

Þakkir til Færeyinga.

Miklar og góðar þakkir til Færeyinga sem voru fyrstir til að rétta okkur

hjálparhönd, hafið ávalt þakkir fyrir og meigi ykkur vegna vel í þessu ástandi sem nær ti allra í heiminum.


Er Bankamálaráðherra hæfur í sínu starfi ?

Ég spyr er Björgvin G Sigurðsson hæfur sem bankamálaráðherra hann lét að mig minnir 350 miljarða

til að það væri hægt að borga út úr peningamarkaðsjóðum Landsbankans en svo notaði Landsbankinn

ekki nema 200 miljarða til að borga fólkinu út sem sagt skerðing uppá ca 32 % meðan Byr Spaisjóður

borgar 94,4% hvernig má það vera að Byr Sparisjóður getur borgað sínum sparifjáreigundum svona

mikið ?Björgvin G sigurðsson sagði að hann ætlaði ekki að skipta sér að hvað bankinn borgaði mikið

það væri pólitíkst afskiptasemi, einhverstaðar las ég það, þið bloggarar leiðréttið mig ef ég fer með 

rangt mál ,hann talar um að hann meigi ekki skipta sér af hvað bankinn ætlar að borga út

auðvitað má hann það þetta er ríkisbanki og peningarnir koma úr ríkissjóði,hann fyrrar sig allri ábyrgð

eins og með FME fjármálaeftirlitið hann hlýtur að vera yfirmaður þess? Svo var ríkisstjórnin búinn að

vita hvað væri framunda frá því í Mars og ekkert gert.Geir H Haarde laug að þjóðinni þegar hann var 

spurður hvað þeir væru að funda um bara fá stöðuna og vita hvrnig málin stæðu meðan hann var 

á fundi í NY.Ég vona að einhver komi með fleira um þessi mál. Góðar stundir.


Mikið tap á séreignasjóði í Glitni.

Mig grunaði aldrei að það yrði svona mikið tap á séreignasjóðnum mínu eins og komið er nú í ljós

ég hafði valið áhættuhóp 2 sem tilheyrði mínum aldurshóp og átti að vera nokkuð öruggt eða mér var

allavega ráðlagt að vera í þessum hóp en það er lítið hægt að gera í því eins og komið er, ég var búinn að

taka eftir því að hvað hann lækkaði ört og hringdi og talaði við þá hjá sjóðnum og vildi gera eitthvað ?

sem væri öruggt en þá var það of seint þá var mér bent á held að það sé kallað vaxtareikningur sem

gefur einhverja x vexti.Hvet fólk til að kanna í hvað áhætuhóp það er í og fá ráðleggingar um hvað henti

því best. Nóg er tapið í peningabréfunum ,jæja nóg með þetta það var eins gott að það var dregið til

baka með útstrikunina hjá yfirmönnum KB Banka á hlutabréfunum já og hinum bönkunum líka annars

hefði allt orðið vitlaust að ég held eða eins og einhver sagði hættum bara að borga skuldirnar okkar hvað

hefði gerst þá ?.

 

 

 


Mótmæli á Austurvelli munu þau bera árangur. ?

Ég held ekki verða ekki þessir menn sem voru með eftirlitskerfi með bönkunum þ,e.s.fjármálaeftirlitð að axla ábyrgð og svara fyrir það sem þeir gerðu ekki
þeir áttu að fylgjast með þessu en gerðu ekki ,Ég spyr hvað var FME að gera sá hún ekki þessa skýrslu sem var stungið undir stól eð neitar hún og reynir að fyrra sig allri ábyrgð.Ein spurning hvað lá Seðlabankastjóranum á að komast í kastljós og tilkynna bretum að við myndum aldrei borga þessa skuld sem einkabankarnir komu okkur í það var auðvitað til að koma KB Banka á hausinn eða hvað hver veit, mér finnst nú í dag liggja á að fara að hjálpa fólki sem eru komin í vanskil og eru þegar að missa húsin sín, en það er bara talað og ekkert gerist það er langt síðan að öll lán hækkuðu og ekkert er gerist bara verið að skipa í nefndir svo væntanlega tekur óralangan tíma að koma með einhverjar tillögur,frysta verðtrygginguna það er búið nú þegar að hjálpa þeim sem keyptu íbúðir með myndkörfuláni sem íbúðarlánasjóður á að breyta í verðtryggð lán.
Ég held að þetta sé rétt skilið hjá mér en á sama tíma er verið að velta fyrir sér hvort eigi að frysta verðtrygginguna eða hvað þeir eru að hugsa, málið er að það þarf að gera eitthvað strax fryrir þá sem eru með venuleg lán verðtrygð.
Fólk er komið nú þegar í vanskil og um leið og það fer í vanskil þá skal borga upp vanskilin áður en eitthvað er hægt að gera fyrir það er ekki alltaf hægt þar sem fólk er búið að missa vinnuna.
Horfði á Silfur Egils og hagfræðingana tvo ansi áhugaverðar lausnir að láta íbúðalánasjóðinn kaupa eitthvað í eigninni á móti eiganda t.d.3 ár og svo kaupir
eigandinn það aftur, með því ða lengja lánið eða bæta við hófuðstól athyglisverðar hugmyndir.?

kveða gug.


Hvað verður gert fyrir aldraða og öryrkja ?

Hvað verður gert fyrir aldraða og öryrkja ég hef ekki heyrt minnst á þá þeir þurfa ábyggilega hækkun og aðstoð eins og þeir sem eru að missa vinnuna ekki hefur örorku eða ellilýfeyririn hækkað hjá þeim nú kallar verkalýðsforystan á hækkun á atvinnuleysisbótum.Hefur einhver heyrt um þessi mál Eða hefur þetta farið framhjá mér ?.

Er Björgólfur að segja satt eða, Geir kannast ekkert við þessi ummæli

Skrýtið að Seðlabankinn tjáir sig ekki um einstök mál eins og þetta við viljum fá að vita hvað eða hvort

einhver samtöl þarna fóru á milli, ef það er rétt sem Björgólfur THOR er að seigja þjóðinni að Seðlabankinn hafi ekki svarað þessari flýtibeiðnium þessa 200 miljón Evru lán Bretanna þá hefðu þeir tekið alla ábyrgð á sig.

Seðlabakinn verður að tjá sig um þetta mál þetta er grafalvarlegt og það þýðir ekki fyrir Geir að segjast ekki muna hvort þetta hafi verið í umræðuni.Kemur væntanlega l ljós .

kveðja gug.

 

 


Peningabréf Landsbankans, ?Er þau tapað fé ?

Enn og aftur spyr ég um peningabréf lansbankans verða þau greidd út eða er
þetta tapaður sparnaður, ég veit um fermingabarn sem, lagði inn sína ferminga
pening skildi hann fá þá greidda þegar hann vill taka þá út dóttir mín lagði inn
reykingapeningana sem hún safnaði eftir að hún hætti að reykja ætli hún fái þá
greidda út þegar hana vantar þá ég var í mánaðar sparnaði lagði x krónur inn á mánuði og konan mín líka þetta átti að vera öruggasti sparnaðurinn + með hæstu vöxtum, ég vona að eitthvað fari að skýrst í þessu máli.Mig langar að koma því á framfæri að ég veit um fólk sem sem seldu hús sín og lögðu mismuninn inn á þennan
sjóð 40 til 60 milljónir svo þetta ermjög alvarleg staða og svo fær fólk lítið
sem ekkert að vita, þessi sjóður verður að endurgreiðast til sjóðsfélaga annars
spái ég mjög harkalegum aðgerðum fólks takið eftir ævisparnaður margra.
Vonandi kemur svar við þessu sem fyrst.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband